Önnur plata Paunkholm hefur litið dagsins ljós. Hún er samnefnd listamanninum og hefur verið í vinnslu allt frá því Covid 19 gerði strandhögg hérlendis.
Það var ekki á dagskrá á þessum tímapunkti að gera plötu en með aflýstu tónleikahaldi sá Paunkholm sér leik á borði að nýta tímann í stúdíó með það að markmiði að hafa plötu tilbúna fyrir árslok. Með hráar hugmyndir af lögum á teikniborðinu, var hafist handa að semja gripinn í sóttkví. Lög og textar urðu til og platan var unnin í skorpum.
Paunkholm er hliðarsjálf Franz Gunnarssonar, sem semur öll lög og texta. Franz hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi í tæp 30 ár í hljómsveitum eins og Ensími og Dr.Spock, ásamt því að leika með mörgu af okkar besta tónlistarfólki.
Aðdragandinn að Paunkholm er býsna langur. Á fjöldamörgum árum í tónlistarbransanum hefur Franz verið duglegur að semja lög og vinna með hugmyndir sem ekki hafa samræmst stefnum þeirra sveita sem hann er meðlimur í og hefur sú músík oftast nær endað ofan í skúffu. Eftir mikinn lífstíls viðsnúning og tiltekt í tilveru sinni, ákvað Paunkholm að hreinsa til í harða disk heilans og koma einhverju af því efni sem safnast hefur saman út í kosmósinn.
Frumburðurinn „Kaflaskil“ var gefin út á vínyl árið 2017 og skartar nokkrum af bestu söngröddum landsins ásamt einvalaliði hljóðfæraleikara. Platan fékk fínar viðtökur og góða dóma. Síðla sumars 2019 kom út ný smáskífa sem ber heitið Hjartafleygur þar sem Paunkholm syngur sjálfur. Upp frá því var ákveðið að næsta plata yrði alfarið sungin af Paunkholm.
Platan er gefin út í þeirri hugsjón að skapa músík og vonandi veita einhverskonar hughrif. Þó tónlistin sé poppuð þá eru textarnir engar tyggjókúluklessur. Það er undirliggjandi alvara í flestum þeirra, í bland við léttara hjal.
Umræðan