Singúllinn Love Is A Drug er sá annar í röðinni af þremur sem út kemur fyrir útgáfu plötunnar Dusty Mountains sem kemur út í febrúar 2021.
Tónlistarferill Hreins J. Stephensen aka HREINN er býsna langur. Hann flutti til Svíþjóðar um miðjan 10. ártug síðustu aldar og starfaði þar m.a. með hljómsveitinni Wilmacakebread, en hafði þar áður verið í hljómsveitum eins og Hálfur undir sæng, Dýrið gengur laust og Risaeðlan. Hreinn er fluttur tilbaka til Íslands eftir 23 ár erlendis og er afar iðinn við tónlistarsköpun sína þessa dagana.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta æa lagið, skelltu á play!
HREINN á Facebook
Umræðan