Fyrir skömmu sendi Hugrún Britta og tónlistarmaðurinn Erik Sjöstedt frá sér tvö ný lög, Change Me og Appetite.
„Change Me fjallar um samband sem ég var í sem varð til þess að ég flutti til Svíþjóðar og hóf þar nýtt líf,“ segir Hugrún og bætir við að það hafi verið frelsandi að taka erfiða lífsreynslu og breyta henni í eitthvað skemmtilegt, eins og popplag sem hægt er að dansa við.
„Það er virkilega magnað hvernig tónlistin getur snúið blaðinu við og fengið mann til að líta á heiminn í öðru ljósi. Lagið Appetite fjallar um kynlíf og áhrif þess á lífið og heiminn.“ Hugrún tekur fram að hún hafi lengi verið hrædd við að spila popptónlist þar sem hún hafi frá barnsaldri nánast alfarið haldið sig við klassíska tónlist og rokk. Svo hafi hún áttað sig á því að ekki þyrfti leyfi frá einum eða neinum til að semja tónlist. „Að byrja að gera popptónlist er eitt af skemmtilegustu verkefnum sem ég hef tekið að mér í mjög langan tíma,“ segir hún hress
Hugrún Britta á Instagram
Umræðan