Þann 19. júní komu út fjögur ný lög frá hljómsveitinni Brek á allar helstu streymiveitur: Fjaran, Athvarf, Soaring Crow og Vegslóðinn. Til að fagna útgáfunni blæs hljómsveitin til tónleika í Hannesarholti miðvikudaginn 24. júní. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 en miðasala fer fram á tix.is og við hurð – miðaverð er aðeins 2500 kr. Nánari upplýsingar má nálgast á www.brek.is
Brek gaf út sín fyrstu lög, Um nýliðinn dag og Memory Lane, í febrúar 2020 og hefur ekki slegið slöku við síðan. Hljómsveitin stefnir svo að útgáfu sinnar fyrstu breiðskífu í byrjun næsta árs.
Hin órafmagnaða tónlist sveitarinnar sækir áhrif víða að m.a. úr íslenskum þjóðlagaarfi, skandinavískri og bandarískri tónlist, jazzi og fleiru. Áhersla er lögð á vandaða íslenska texta en jafnframt að skapa stemningu sem er grípandi og þægileg, en þó krefjandi á köflum. Hljómsveitin Brek er fersk viðbót í íslenska tónlistarflóru.
Hér má hlusta á Spotify: https://open.spotify.com/album/0Fta58XdmX2WViC1GOaJe8?si=JvoxR2c5SJWrF9PPDNUAxQ
Umræðan