Íslensk-rússneska tvíeykið Pale Moon gefur út sína fyrstu EP-plötu, Dust of Days, mánudaginn 15. apríl.
Meðlimir sveitarinnar eru Natasha Sushchenko og Árni Guðjónsson tón smiður en þau tóku plötuna upp á gömlum sveitabæ á Suðurlandi, sem þau fengu að láni og segja að hún sé undir áhrifum frá meðal annars Carole King og Rolling Stonesplöt unni Exile on Main St. Þess má geta að Natasha og Árni reka líka saman tísku og lífsstílsverslunina Kvartýra 49 á Laugavegi og í nafni hennar birta þau mánaðarlegt hlaðvarp þar sem fjallað er um nýútkomna ís lenska tónlist, bjóða viðmælendum sín um í heimsókn og fá þá til að leika fyrir dansi á milli fataslánna. Hlað varp ið kallast Gulu Bogagöngin og má finna á Itunes, Podcast appinu og Sound cloud. Platan Dust of Days er fyrsta fullvaxta tónlistarverkefn þeirra Natöshu og Árna.
Umræðan