Næsta og jafnframt síðasta sumarnámskeiðið hefst mánudaginn 16. ágúst og erum við að taka á móti skráningum núna.
Námskeiðin eru fyrir byrjendur og lengra komna en skipt verður í hópa eftir getu. Líkt og á fyrri námskeiðum er það Steinar Fjeldsted sem sér um kennsluna en hann hefur um þrjátíu ára reynslu af hjólabrettum, hefur tekið þátt í fjölda keppna bæði hér á landi og erlendis og verið viðloðinn brettanámskeiðum í um fimmtán ár. Honum til halds og traust verður hjólabrettakappinn Dagur Örn en hann hefur kennt á hjólabretti í nokkur ár með afar góðum árangri.
Á námskeiðinu verður farið yfir öll helstu grunnatriði hjólabrettaíþróttarinnar eins og t.d. ýta sér, hvernig á að standa, snúa við, líkamsstöður og Ollie (hoppa) svo fátt sé nefnt. En fyrir þá sem eru lengra komnir verður farið í ögn flóknari hluti eins og t.d. Kickflip, Shuvit og jafnvel 360 flip svo fátt sé nefnt!
Á námskeiðinu er hjálmaskilda en einnig eru allir hvattir til að koma með þær hlífar sem viðkomandi á. Gott er að eiga hjólabretti en við erum með nokkur lánsbretti sem hægt er að fá lánað.
Námskeiðið fer fram í innanhússaðstöðunni að Dugguvogi 8 í Reykjavík. Námskeiðið er ætlað öllum kátum krökkum á aldrinum 6-12 ára en ekki fastmótað. Námskeiðið stendur frá mánudeginum 16. ágúst til föstudagsins 20. ágúst frá kl 09:00-12:00. Skráning fram á hjolabrettaskoli@gmail.com og í síma 768-8606, nafn og kennitala barns þarf að fylgja skráningu sem og nafn og símanúmer forráðamanns.
Hjólabrettaskóli Reykjavíkur eru styrktur af Hámark
Hægt er að sjá nánar um starfsemina okkar hér
Hjólabrettaskóli Reykjavíkur á Instagram
Umræðan