Hljómsveitin Hjálmar hefur haldið sér upptekinni á þessu ári í Hljóðrita í Hafnarfirði við upptökur á nýju efni. Það allra nýjasta er lag sem þeir flytja með tónlistarkonunni GDRN. Lagið sem heitir Upp á rönd er samið af Sigurði Guðmundssyni og Guðrúnu Ýr (GDRN).
Hjálmar eru að vinna að nýrri plötu um þessar mundir þar sem þeir vinna með hinum ýmsu tónlistarmönnum. Undanfarið hafa þeir sent frá sér lög með Kára Stefánssyni, Prins Póló, Bubba og nú GDRN. Hvað mun svo rata á plötuna og hverjir fleiri kíkja á Hjálmana í hljóðverið verður að koma í ljós síðar.
Umræðan