Hljómsveitin RED RIOT er skipuð þeim Hildi Kristínu Stefánsdóttur og Rögnu Kjartansdóttur, betur þekktum sem Hildur og Cell7. Á dögunum gáfu Þær út sitt annað lag, One More Dance, ásamt tónlistarmanninum David44.
Lagið er samið af þeim ásamt tónlistarmanninum Huginn, pródúserað af RED RIOT og gefið út af Kimochi Records. Lagið er ljúfsárt dans-sumarsmellur sem varð til í byrjun árs. David44 er íslenskur tónlistarmaður sem hefur verið búsettur í Kaupmannahöfn frá barnæsku og ljáir hann laginu silkimjúka rödd sína. Lagið var gert á sannkallaðan covid-hátt þar sem vegna ferðahafta hittust RED RIOT og David44 ekki við upptöku lagsins heldur sendu einungis upptökur yfir netið.
RED RIOT hafa vakið athygli tónlistarunnenda síðan þær gáfu út sitt fyrsta lag Bounce Back í febrúar og komu í kjölfarið fram í Vikunni hjá Gísla Marteini og gáfu einnig út eftirminnilegt myndband með leikstjóranum Baltarsar Breka, þar sem hundar voru í aðalhlutverkum. RED RIOT vinna nú að sinni fyrstu breiðskífu sem er væntanleg í lok sumars og stefna einnig að tónleikaferð um landið til að kynna plötuna.
Umræðan