Það var í dúndrandi júníhita í innsveitum suðurlands sem tríóið Hist Og tók upp sína aðra plötu, Hits of.
Platan er nú tilbúin til útgáfu og inniheldur slagþunga slagara, hitablásna hittara og naglalakkaðar neglur í við fyrri plötu tríósins, Days of Tundra, sem hlaut góðar viðtökur og var meðal annars tilnefnd til þriggja verðlauna á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2019, Kraumsverðlaunanna og sem “Spuni Ársins” á Morgunblaðinu. Platan kom út 12 desember á vegum Reykjavík Record Shop og inniheldur tónsmíðar eftir meðlimi tríósins. Upptökustjórn annaðist sem áður Albert Finnbogason, mastering var í höndum Ívars Ragnarssonar og umslag var hannað af Páli Ivani frá Eiðum. Útgáfutónleikar verða svo haldnir þegar aðstæður leyfa.
Tríóið hist og var stofnað í lok árs 2017 fyrir tónlistarhátíðina „Norður Og Niður“ sem haldin var af meðlimum Sigur Rósar. Tríóið skipa Eiríkur Orri Ólafsson, sem leikur á trompet, tölvu og hljómborð, Róbert Sturla Reynisson á gítar, bassa og hljómborð og Magnús Tryggvason Eliassen á trommur og því tengt. Meðlimir hist og hafa starfað saman um árabil í ýmsum hljómsveitum, svo sem múm, amiinu og Sin Fang. Sitt í hvoru lagi hafa þeir auk þess starfað með hljómsveitum á borð við Sigur Rós, Kiru Kiru, Benna Hemm Hemm og Seabear, ásamt ótal samstarfsverkefna á sviði djasstónlistar með ADHD, Hilmari Jenssyni, Skúla Sverrissyni og Mógil.
Þeir beina nú stækkunarglerinu að sameiginlegum snertifleti sínum. Tónlistin er innhverf, úthverf og slagþung blanda af djass, raf-, og spunatónlist sem kemur víða við.