Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með spennandi vordagskrá sína miðvikudaginn 12. maí kl. 20:00 í Flóa í Hörpu með hljómsveitinni Hist og. Tríóið var stofnað í lok árs 2017 fyrir tónlistarhátíðina „Norður Og Niður” sem haldin var af meðlimum Sigur Rósar.
Meðlimir Hist og hafa starfað saman um árabil í ýmsum hljómsveitum, svo sem múm, amiinu og Sin Fang. Sitt í hvoru lagi hafa þeir auk þess starfað með hljómsveitum á borð við Sigur Rós, Kiru Kiru, Benna Hemm Hemm og Seabear, ásamt ótal samstarfsverkefna á sviði djasstónlistar með ADHD, Hilmari Jenssyni, Skúla Sverrissyni og Mógil. Þeir beina nú stækkunarglerinu að sameiginlegum snertifleti sínum. Tónlistin er innhverf, úthverf og slagþung blanda af djass, raf-, og spunatónlist sem kemur víða við. Eiríkur Orri Ólafsson, trompet, hljómborð og trommuheili Róbert Reynisson, gítar, bassi, hljómborð Magnús Trygvason Eliassen, trommur og slagverk.
Alls eru ráðgerðir 17 tónleikar í tónleikaröðinni en tónleikadagskráin sem að vanda bæði bæði metnaðarfull og fjölbreytt er gott dæmi um þá miklu grósku sem einkennir íslenskt jazzlíf þar sem allir straumar og stefnur eiga heima. Múlinn er að hefja sitt 24. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóðnum og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku Tónlistarverðlaunanna. Tónleikar Múlans hefjast klukkan 20 en tónleikarnir fara fram í Flóa, á fyrstu hæð Hörpu og er miðaverð kr. 3500, 2000 kr. fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu, harpa.is og tix.is
Umræðan