Í dag, fimmtudaginn 13. febrúar fer tónskáldið Hildur Guðnadóttir yfir feril sinn, verk, rannsóknir og vinnuaðferðir í fjarfundarsamtali við Fríðu Björk Ingvarsdóttur, rektor Listaháskóla Íslands.
Undanfarin misseri hefur tónskáldið Hildur Guðnadóttir verið áberandi í tónlistarheiminum og gengið sannkallaða sigurgöngu. Verkefnin hennar hafa verið verðlaunuð og viðurkennd á fjölbreyttum vettvangi og á dögunum fékk hún meðal annars Óskarinn fyrir tónlist sína í kvikmyndinni The Joker.
Hildur var ein af þeim fyrstu sem útskrifaðist af tónsmíðbraut með áherslu á nýmiðla frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Hildur nam einnig við Listaháskóla Berlínar en hún hóf ung að árum að læra á selló í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Hildur hefur haslað sér völl sem ein af helstu tónlistarmönnum og konum á sviði tilraunakenndrar popptónlistar og samtímatónlistar. Í einleiksverkum sínum dregur hún fram hljóð sem spanna vítt svið, allt frá því að vera áleitin í einfaldleika sínum til þess að vera margbroti.
Viðburðurinn er fullbókaður en beint streymi verður frá viðburðinum á live.lhi.is.
Viðburðurinn fer fram kl. 17-18.30 í húsnæði Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91, í stóra sal L223. Húsið opnar kl. 16.30 og mælt er með því að mæta tímanlega.
Umræðan