Söngkonan Hera Hjartardóttir er komin aftur til Íslands eftir aldarfjórðungsbúsetu á Nýja Sjálandi.
Hún er að leggja lokahönd á nýjustu plötuna sína og er How does a lie taste? fyrsta smáskífan af henni. Barði Jóhannsson útsetti plötuna en hún hefur verið í vinnslu í um þrjú ár. Lagið kemur út á allar helstu streymisveitur 18. október.
How does a lie taste? er lag sem snýst meðal annars um það að stíga út til þess að að líta innávið. Að sögn Heru sjálfrar fjallar lagið um að á erfiðum tímum er auðvelt að gleyma sér í nýjum ævintýrum og sleppa því að takast á við vandamálin með því að stinga þau af. Lagið er áminning um það að vera að vera sjálfum sér trúr en lausnin felst meðal annars í því að stoppa, hugsa og finna tengingu við náttúruna og núið.
Hera hefur með dvöl sinni erlendis unnið með listafólki hvaðanæva, og meðal annars sá hún um skipulagningu á tónleikaferðum og tónlistarhátíðum. Næsta sumar heldur hún svo sjálf í tónleikaferðalag um Ísland og ætlar hringinn í kringum landið.
Hera á Facebook
Umræðan