Söngkonan Hera Hjartardóttir sendir frá sér nýja plötu sem ber heitið „Hera.” Þetta er hennar tíunda breiðskífa og í þetta skiptið er það Barði Jóhannsson sem stýrir upptökum.
Meðal laga á plötunni eru „How Does a Lie Taste?” sem kom út síðasta haust og hefur fengið góða spilun í útvarpi og „Process” sem náði meðal annars fyrsta sætinu á vinsældarlista Rásar 2.
Hera hefur að mestu leyti búið á Nýja Sjálandi undanfarin 24 ár, en er nú flutt aftur heim til Íslands. Platan hefur verið í vinnslu í rúm 3 ár og er tekin upp á Íslandi, Nýja Sjálandi og í Bandaríkjunum og masteruð í Bretlandi. Þetta er fyrsta sólóplata Heru í rúm 8 ár og sú fyrsta sem kemur út á vínyl ásamt því að koma út á geisladiski.
Lögin eru mjög persónuleg og snúast meðal annars um það að stoppa, hugsa og finna tengingu við náttúruna og núið.
Umræðan