Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna verða með tónleika í Hlégarði Mosfellsbæ, föstudaginn 29. maí klukkan 21.
„Það var gott að vera með ykkur heima en það verður kær komið að syngja fyrir framan fullan sal í Hlégarði, þaðan sem þættirnir vinsælu voru sendir út,“ segir Helgi en hann og Reiðmenn vindanna munu taka vel valin lög úr þáttunum Heima með Helga, sem voru sýndir við miklar vin sældir í Sjónvarpi Símans.
Aðeins 200 miðar eru í boði og er miðasala hafin á Tix.is.
Helgi Björns og reiðmenn vindanna á Facebook
Umræðan