Heimur versnandi fer en grínið verður betra og betra því Subbuverið hefur nú sent frá sér sitt árlega Subbuskaup, og það í annað sinn.
Þar fara Subbverjar yfir hið stórfurðulega ár sem 2019 hefur verið og reyna að túlka sturlun þess í álíka firrtum og kaldhæðnum sketsum.
Subbuskaupið er framleitt af Subbuverinu, en að því standa Gunnjón Gestsson og Orri Snær Karlsson. Subbuskaupið og allt efni Subbuversins (þar á meðal nasldramað Orri snakkar) má finna á YouTube rás þeirra.
Subbuverið á Facebook
Umræðan