Á dögunum birti Red Bull TV nýtt myndband eða stutta heimildarmynd þar sem fjallað er ítarlega um brimbretti á Íslandi.
Í aðalhlutverki eru Heiðar Logi og ljósmyndarinn Erlendur Þór Magnússon. Heiðar Logi Elíasson er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Í myndinni voru einnig þekktir brimbrettamenn frá Ástralíu, Spáni, Írlandi og Bandaríkjunum. Ísland er einn erfiðasti staður í heiminum til að stunda íþróttina. Í myndinni sést hvernig þeir berjast við íslensku öldurnar við að ná hinni fullkomnu mynd.
Í tilefni þess að myndin var að koma út mun Heiðar Logi og Erlendur Þór í samstarfi við Red bull á Íslandi halda frumsýningarpartý í Háskólabíói á morgun, fimmtudag 20.febrúar kl: 18:00. Heiðar Logi mun stíga á stokk og segja frá magnaðri upplifun sinni við gerð myndarinnar og svara spurningum að lokinni sýningu. Sýningin er opin öllum eldri en 20 ára á meðan húsrúm leyfir.
Umræðan