Thorsteinn Einarsson er 25 ára íslenskur tónlistarmaður sem er búsettur í Þýskalandi og hefur tónlistin hans vakið mikla athygli þar sem og í öðrum Evrópulöndum.
Lagið Shackles kom út þann 25.júní og hefur fengið frábærar viðtökur hjá útvarpsstöðum erlendis sem fara enn hækkandi þá aðallega í Þýskalandi og Austurríki.
Shackles er ótrúlega öflugt og grípandi popp-rokk lag sem nær manni við fyrstu hlustun. Gaman er að veita gítarleiknum athygli en þetta var fyrsta demo takan hans Thorsteins, heima í stofu og tekið upp á símann sem gefur laginu skemmtilegan, hráan og krassandi hljóm.
Thorsteinn nýtti kófið vel til þess að smíða tónlist og texta en von er á meira efni frá honum á næstunni.
Hér má sjá myndband við lagið en Thorsteinn og hans teymi erlendis bjuggu til myndbandið.
Umræðan