Hátíð hirðarinnar verður haldin í Gamla Bíó 26. apríl, á afmælisdegi Svavars Péturs Eysteinssonar, Prins Póló. Fjölmargar hljómsveitir og tónlistafólk koma fram og spila nokkur lög til heiðurs Svavars Péturs.
Á dagskránni eru hljómsveitir sem tengdust listamanninum með einum eða öðrum hætti; sveitir sem hann var í og tónlistarfólk sem hann starfaði með eða vakti aðdáun hans.

Allur ágóði af tónleikunum rennur í nýstofnaðan minningarsjóð Svavars Péturs Eysteinssonar. Útdeilt verður árlega úr sjóðnum til skapandi fólks með góðar hugmyndir. Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við RÚV og Borg brugghús. Svavar Pétur var einstakur listamaður sem hafði mikil áhrif á okkur öll. Hann var alltaf hvetjandi og drífandi. Nennti ekki að velta sér upp úr hlutunum og hafði mikla þörf til að láta galdurinn gerast. Í þessum anda langar okkur að minnast hans og blása í lúðra á afmælisdegi hans.
Eftirfarandi listamenn koma fram á tónleikunum:
Árný Margrét, Baggalútur, Benni Hemm Hemm, Borko, BSÍ, Dr. Gunni, FM Belfast, Jónas Sigurðsson, Moses Hightower, Múldýrið (DJ sett), Múm, Músíkvatur, Skakkamanage, Snorri Helgason, Valdimar
Kynnar:
Friðgeir Einarsson, Saga Garðarsdóttir
Allur ágóði rennur í Minningarsjóð Svavars Péturs Eysteinssonar. Miðasala á tix.is Miðaverð: 5.900.- í stæði og 7.900.- í sæti.
Umræðan