Verðlaunahafinn Gyða Valtýsdóttir gefur út Epicycle II Spilar Epicycle á Listahátíð ásamt einvalaliði tónlistarfólks.
Epicycle II með Gyðu Valtýsdóttur kom út 28. ágúst síðastliðin. Platan er fáanleg á bæði CD og LP og er dreift á vegum Smekkleysu á Íslandi. Áður hefur hún gefið út Epicycle á vegum DiaMond og Smekkleysu og einnig breiðskífuna Evolution. Gyða er ein stofnenda hljómsveitarinnar múm sem hefur hlotið heimsathygli fyrir breiðskífur sínar. Hún hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra.
Epicycle II er gefin út á vegum Sono Luminus og DiaMond útgáfumerki Gyðu. Sono Luminus er bandarískt merki og eitt það virtasta í heimi samtímatónlistar í dag. Útgáfur þeirra hafi unnið til Grammy verðlauna og er þau með Önnu Þorvaldsdóttur, Pál Ragnar Pálsson, Daníel Bjarnason, Halldór Smárason og Nordic Affect á sínum snærum. Gyða kemur fram á Listahátíð í Reykjavík miðvikudagskvöldið 23. september, kl. 21:00, á einstökum tónleikum í Norðurljósum, Hörpu. Miðasala er hafin í miðasölu Hörpu og á Tix.is.
Í texta Listahátíðar í Reyjavík segir: „Hér rennur saman ævafornt og nýtt, heillandi útsetningar Gyðu á tónlist tónskálda á borð við galdranunnuna Hildegard von Bingen og franska dulhyggjumanninn Olivier Messiaen í bland við magnaða tónheima tónlistarfólks eins og Skúla Sverrissonar, Daníels Bjarnasonar, Kjartans Sveinssonar og Ólafar Arnalds sem ásamt fleirum eiga tónlist á nýrri plötu Gyðu, Epicycle II.“ Myndband við “Air To Breath” eftir Gyðu og Daníel Bjarnason.
Viðtökurnar á breiðskífunni hafa verið glimrandi og plötugagnrýni hefur hvarvetna verið jákvæð. Líkt og áður hefur komið þá vann Gyða til hinna mikilsmetnu Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Álit dómnefndarinnar á tónlistarkonunni var svohljóðandi: „mikla sérstöðu sem flytjandi og nærvera hennar á sviði er bæði heillandi og einstök – viðkvæm, óræð en jafnframt kraftmikil.“
Gyða Valtýsdóttir á Facebook
Umræðan