Hljómsveitin Grísalappalísa kom sem stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf árin 2013 og 2014 með plötunum Ali og Rökréttu framhaldi. Eftir langt og strangt sköpunarferli hefur Týnda rásin, þriðja breiðskífa sveitarinnar, litið dagsins ljós.
Að sögn sveitarinnar er platan bylgjulengdin sem enginn stillir á, „útvarpsstöðin sem er falin á tíðni sem þú nærð ekki sambandi við, útsending út í tómið. Hún er bergmálshellir. Þangað villist þú og hverfur niður, ef til vill að einhverju leyti af eigin ásetningi.“ Hægt er að nálgast plötuna á öllum helstu streymisveitum.
Sveitin blæs til heljarinnar útgáfutónleika og kveðjutónleika í Iðnó þann 28. Ágúst næstkomandi. Já kveðjutónleika því sveitin er að syngja sitt síðasta og hefur ákveðið að yfirgefa sviðið. Tónlistarkonan Dj. flugvél og geimskip kemur einnig fram á tónleikunum og er hægt að nálgast miða á Tix.is.
Umræðan