Fimmtudaginn 2. júlí mun hljómsveitin Góða fólkið halda sína fyrstu tónleika á árinu og verða þeir á hinu nýupprisna Café Rosenberg, Vesturgötu 3. Góða fólkið er Eyvindur Karlsson söngvari og gítarleikari, Loftur S. Loftsson bassaleikari, Guðmundur Atli Pétursson mandólínleikari, Ármann Guðmundsson gítarleikari og Vignir Pálsson banjóleikari sem reyndar verður fjarri góðu gamni í þetta sinn.
Í tilefni tónleikanna hentu þeir félagar í þjóðlagapoppútsetningu af laginu “Húsavík” úr myndinni The Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga og er óhætt að segja að það hljómi býsna ólíkt því sem heyra má í myndinni. Auk þess samanstendur efnisskrá tónleikana af blöndu af ekta þjóðlagatónlist og allra handa popplögum sem færð hafa verið í þjóðlagabúning.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og miðaverð er 2.000 kr.
Umræðan