Draumfarir er glænýtt tvíeyki sem er skipað þeim Birgi Stefánssyni og Ragnari Má Jónssyni.
Drengirnir voru að senda frá sér sitt fyrsta lag sem ber heitið „Bjartar nætur.” Lagið er sumarlegt og fjörugt, og er óður þeirra til sumarsins 2020. Birgir hefur verið að senda frá sér tónlist undir nafni Birgir oh hefur gengið gríðarlega vel hér heima sem og erlendis.
Nýja lagið er virkilega grípandi og á án efa eftir að óma í eyrum landsmanna í sumar, og ókomna tíð!
Umræðan