Tónlistarmaðurinn Þórir Georg sendi nýlega frá sér glænýtt lag sem ber nafnið Fastur.
Lagið var tekið upp í heimastúdíói hans í sumar og er fyrsta smáskífa af nýrri plötu hans sem væntanleg er í vetur. Þórir Georg hefur verið afkastamikill í íslensku tónlistarsenunni undanfarin ár en í október verða liðin 15 ár frá því að fyrsta plata hans, I belive in this, kom út hjá 12 tónum. Á þessum árum hefur hann gefið út ótal einyrkja plötur auk þess að vera hluti af hljómsveitum á borð við ROHT, Gavin Portland, Ofvitarnir, Kvöl, D7Y og fleirum.
Auk þess að gefa út nýtt efni munu eldri útgáfur þess afkastamikla listamans byrja að birtast á öllum helstu streymiveitum á næstu vikum og mánuðum. Fyrst verður það platan Janúar sem kom fyrst út 1. janúar 2012 og er hún væntanlega í lok vikunnar.
Umræðan