Vinsælasti rappari og poppari landsins, Herra Hnetusmjör gefur nú loksins út lagið Gerðu Þig sem hann flutti á Hlustendaverðlaununum 2021. Lagið er nú aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.
Gerðu Þig er lag sem færir tónlistarmanninn á nýjar slóðir, hér er alvöru popp-rokk lag með rafgítar og sterkri rödd Herrans. Hann vinnur hér með okkar besta popp lagasmið landsins, Þormóði Eiríkssyni. (Aron Can, JóiPéxKróli, Birnir, Páll Óskar osfrv.)
„Lagið er óður til píu sem dansar eins og enginn sé að horfa og er alveg sama um allt og alla” segir um lagið. Það má segja að Herra Hnetusmjör sé byrjaður að kasta út tónlist sem hann hefur unnið að í kófinu – en von er á öðru lagi frá honum með hinum dularfulla HÚGÓ á morgun (2.júlí).
Umræðan