Tónlistarmaðurinn Anik var að senda frá sér sitt fyrsta sóló lag síðan árið 2000 en það ber heitið „Calmly Confident.”
Anik er þekktur úr hljómsveitinni cryptochrome en hann var ansi áberandi í Hip Hop senunni í london í byrjun þessarar aldar. Anik var meðlimur í hljómsveitinni Dark Circle sem naut mikillar vinsældar en einnig rak hann plötuútgáfuna DJ Vadims. Kappinn hefur komið víða við en hann var á mörgum af fyrstu lögum heimsfrægu hljómsveitarinnar Foreign Beggars.
Anik flutti til Íslands árið 2005 og byrjaði þá að vinna í hljómsveitinni Cryptochrome ásamt konunni sinni Unu Stígsdóttur og Dark Circle pródúsentanum Mr Son. Árið 2016 varð hljómsveitin áberandi fyrir tólf myndbönd sem hún gaf út mánaðarlega fyrir breiðskífuna sína More Human.
Einnig er komið út myndband við lagið og mælum við eindregið með að þú skellir á play og hækkir í græjunum!
Umræðan