DIMMA hefur nú sent frá sér lagið „Þögn” og er það fyrsta lag DIMMU í núverandi mynd en sveitin er um þessar mundir að vinna að sinni sjöttu breiðskífu, sem áætlað er að komi út næsta vor.
Texti lagsins fjallar um mátt orðsins og hægt er að lesa hann í sérstöku textamyndbandi sem sjá má hér að neðan. DIMMA er meðal þeirra listamanna sem koma fram á XMAS 2019, jólatónleikum X-ins, sem haldnir verða í Bæjarbíó föstudaginn 6. desember.
Umræðan