Nú dregur til stórtíðinda! jafnvel má vera að hér sé saga til næstu sveita og bæja.. næstu landa jafnvel!
Eftir eilífðarbið og alltof langan tíma er loksins komið að því! Hin fyrsta al-íslenska jólarapp plata hefur loksins verið marineruð, matreidd og framreidd. Hátíð í þátíð er 4 breiðskífa tónlistarmannsins MC Bjórs og jafnframt hans fyrsta (en alls ekki síðasta) jólaplata.
Hér er um að ræða tímamótaverk þar sem farið er yfir jólin frá hinum ýmsu hliðum. Allt frá hinum hefðbundnu jóla-gleðilögum um snjó og pakka, til hinna dimmari krika hátíðarinnar svosem jólakvíða, stress og heimilisleysis. Platan fer um víðan völl og ætti að koma öllum í jólaskap!
Gestir á plötunni eru ekki af verri kanntinum en þar má nefna Svörtu Sollu, Bjarka B-Nice, Björn Ármann, Tásu, Ívar Daníel sem og þungavigtarkempuna Þóri Baldursson. Platan er tekinn upp og hljóðblönduð af MC Bjór sem sér einnig um rapp, hljóðblöndun og upptökur einnig taktasmíð ásamt vel völdum gestum.
Mc bjór á Facebook