Hljómsveitin Mosi frændi heldur tónleika á Hard Rock Café laugardagskvöldið 31. ágúst ásamt Blóðmör og Saktmóðigum.
Mosinn sendi frá sér sér sína fyrstu stúdíóplötu, Óbreytt ástand, árið 2017 við litlar undirtektir. Platan sú innihélt nokkur lög frá unglingsárum hljómsveitarinnar í bland við nýrra efni en eins og einhverjir muna kannski átti Mosi frændi sér fimmtán mínútna frægð árið 1988 með einsmellungnum Kötlu köldu. Ekki var það mikið að hjálpa gömlu mönnunum að vekja athygli á plötunni sem hlaut nær einróma last þeirra fáu gagnrýnenda sem á annað borð virtu hana viðlits. Þá voru lögin á plötunni nær ekkert spiluð á útvarpsstöðvum landsins.
Þrátt fyrir þessar óblíðu móttökur er Mosi frændi ekki af baki dottinn og hyggur á útgáfu nýrrar plötu á næstunni. „Því er samt ekki að neita að frammistöðukvíðinn er að hellast yfir okkur,” segir Ármann Halldórsson trommari og Gunnar Ólafur Hansson hljómborðsleikari tekur í sama streng: „Ég bý í Kanada og hef þurft að afsaka spilunartölur okkar á Spotiy fyrir vinum mínum með því að Ísland sé svo fámennt,” segir hann frekar niðurlútur.
Nýja platan hefur fengið heitið Aðalfundurinn og ku vera harðari og pönkaðri en sveitin hefur verið þekkt fyrir. „Lögin fjalla um kynlíf, eiturlyf, rokk og ról,” útskýrir Sigurður H. Pálsson söngvari. „Og firringu nútímasamfélagsins,” galar þá Björn Gunnlaugsson gítarleikari. „Svona týpísk miðaldra pönk-yrkisefni.”
Platan verður tekin upp í einum rykk á tveimur dögum í lok vikunnar og verður komin á streymisveitur fljótlega eftir mánaðamót. „Það varð að gera þetta svona,” segir sólógítaristinn Magnús Guðmundsson og bætir við að hann getur ekkert verið að eiða of miklum tíma í þetta. „Maður er jú í vinnu.”
Um leið og upptökum lýkur ætla þeir Mosar að bruna á Hard Rock Café og frumflytja plötuna ásamt fáeinum eldri slögurum. Dagskrá kvöldsins er ekkert slor því sigurvegarar Músíktilrauna 2019, Blóðmör ætla að hita upp ásamt uppáhaldshljómsveit allra sannra íslenskra rokkara, sem er auðvitað Saktmóðigur. Aðalbjörn Þórólfsson bassaleikari áréttar að þetta sé taktísk ráðstöfun. „Sakti dregur að marga af okkar kynslóð og vonandi kemur eitthvað af yngra fólki að sjá Blóðmör.”
Tónleikarnir verða á Hard Rock Café í Lækjargötu laugardagskvöldið 31. ágúst og miðasala er á tix.is sem og við innganginn.