Fríða var að senda frá sér fyrsta lagið af væntanlegri plötu. Lagið heitir More Coffee og semur Fríða bæði lag og texta ásamt því að útsetja lagið, syngja og leika á bassa. Upptökurnar fóru fram hjá Smára Guðmundssyni í Stúdíó Smástirni og hjá Stefáni Erni Gunnlaugssyni í Stúdíó Bambus. Smári spilar á gítar, Halldór Lárusson sér um trommuleik og áslátt og Stefán Örn spilar á píanó og orgel ásamt því að syngja raddir og hljóðblanda. Sigurdór Guðmundsson hjá Skonrokk Mastering sá um hljóðjöfnun.
Upphaflega átti lagið að koma út í sumar og í lok maí hófu þau Fríða og Smári bróðir hennar að grunna lagið í Stúdíó Smástirni. Örfáum klukkustundum síðar fær móðir þeirra alvarlega heilablæðingu með þeim afleiðingum að hún lést á Landspítalanum í Fossvogi tveimur dögum síðar. Skyndilegur móðurmissirinn var mikið áfall, upptökurnar voru settar á ís og við tók erfiðasta en jafnframt lærdómsríkasta sumar í lífi hennar. Það var áskorun að hefja upptökur að nýju á fallegum haustdegi í byrjun september en í því fólst einnig mikill léttir. Að hennar sögn voru fáir sem elskuðu kaffibollann sinn jafn heitt og móðir þeirra og erfðu systkinin kaffiástina í beinan kvenlegg. Þó að móðir þeirra hafi upplifað mikla erfiðleika og sorgir á sinni ævi var viðhorf hennar og viljastyrkur aðdáunarverður, það var alltaf „the high road or no road“ og sú mantra hefur gefið þeim systkinum styrk til að halda sínu striki. Með laginu More Coffee langar Fríðu að minna fólk á að þó á móti blási sé mikilvægt að missa ekki sjónar af því sem veitir manni gleði, dusta hversdagsvandamálin af herðunum, fá sér góðan kaffibolla og elta draumana.
Umræðan