Nóg er um að vera hjá hljómsveitinni Lucy in Blue en fyrir skömmu sendi sveitin frá sér plötuna In Flight.
Norska útgáfufyrirtækinu Karisma Records gefur plötuna út og hefur platan fengið virkilega góðar viðtökur hjá hlustendum og á ýmsum erlendum miðlum. Í kjölfar útgáfutónleika plötunnar á Roadburn festival bauðst sveitinni að fara á hljómleikaferðalag með bandarísku hljómsveitinni Sleep sem er brautryðjandi í stoner/dómsdagsrokki. Eftir boðið langaði sveitinni að breyta til og opna á fleiri möguleika og fluttu á meginland evrópu, til Hollands. Það verður virkilega gaman að fylgjast með þessarri frábæru sveit á næstunni.
Lucy In Blue á Facebook
Lucy In Blue á Instagram
Umræðan