Í fréttum vikunnar fer Ásgeir Börkur Ásgeirsson yfir það helsta í íslenskri tónlist og menningu. Fréttir vikunnar eru gerðar í samstarfi við Debe.is og skúbb vikunnar er í boði SKÚBB ísgerð. fréttirnar eru framleiddar af Thank You Studios fyrir Albumm.is. tónlist: Anton Ísak Óskarsson.
Í fréttum er þetta helst:
Pop up á Laugavegi 7
Frá í gær, Dagana 5. – 7. september taka 10 íslensk fatamerki höndum saman og halda popup á Laugavegi 7. Um er að ræða nýjar vörur í bland við gamla lagera svo mikið verður um dýrðir, afslætti og almenna gleði. Fatamerkin sem verða á boðstólnum eru: Bið að heilsa niðrí Slipp, Eygló, Helicopter, Hlín Reykdal, Huginn Muninn, Hugleikur Dagsson, Kismet, Kyrja, Milla, Snorrason og Sævar Markús.
Vibes 4 ára!
Í ár fagnar plötusnúða krúið Vbes fjögurra ára afmæli sínu og því ber sko að fagna! Vibes liðar hafa ákveðið að halda brjálaðpartí og smita Íslenska næturlífið af góðum straumum og fullt af ást. Herlegheitin fara fram á skemmtistaðnum Bravó á morgun, laugardag 7. September og er frítt inn.
Kraftgalli í Mengi
Kraftgalli (Arnljótur Sigurðsson) ætlar að fagna útgáfu á nýju lagi sínu, Rússíbani, með tónleikum í Mengi, laugardagskvöldið 7. september klukkan 21:00 Á efnisskránni verður fyrrgreint lag að sjálfsögðu spilað, auk þess sem hann kynnir væntanlegar útgáfur tvær. Annars vegar bókina Trítladansinn sem kemur út hjá Print & Friends Verlag í haust.
Húsið opnar 20:30 | Tónleikar hefjast 21:00 | Miðaverð 2000 kr.
Það á engin að deyja á kaldri götunni.
Loftur Gunnarsson svaf á götunni þegar ekki var pláss í Gistiskýlinu. Hann lést 32 ára gamall. Hann lést úr magasári sem auðvelt hefði verið að meðhöndla. Loftur Gunnarsson hefði átt afmæli þann 11. september. Hann hefði orðið 40 ára. Að því tilefni og til þess að auka umræðuna um aðbúnað utangarðsfólks þá verður bláið til styrktartónleika þann 11. september í tónleikasal Hard Rock Cafe, Lækjargötu.
Húsið opnar kl 20:00 og miðaverð er 3.900 kr. Miðasala fer fram á midi.is Kynnir kvöldsins er Andri Freyr Viðarsson.
Umræðan