Tónlistarmaðurinn Pj Glaze var að senda frá sér frábæra ábreiðu af laginu La Vie En Rose sem fjölmargir listamenn hafa sungið í gegnum tíðina.
Lagið kom fyrst út árið 1945 og þá með tónlistarkonunni Edith Piaf en útgáfan sem Glaze breiddi yfir er með tónlistarkonunni Grace Jones.
Pétur Jökull eins og hann heitir réttu nafni hefur komið víða við á sínum tónlistarferli en á sínum tíma gerði hann garðinn frægann með hljómsveitinni alræmdu Dr. Mister & Mr. Handsome. Pétur vinnur nú hörðum höndum að breiðskífu og bíðum við spennt eftir henni!
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á ábreiðuna frá Pj Glaze.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á útgáfu lagsins með Grace Jones.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á upprunanlegu útgáfu lagsins með Edith Piaf.
Pj Glaze á Facebook
Umræðan