„Ég var að vinna niður í bæ á þessum tíma og það voru mótmæli í hverri viku liggur við. Það var erfitt að skrifa ekki um það. Fólk var að fá sér í haus, kaupa sér rándýran mat í 10-11 og búa til skilti sem þýddu sama og ekki neitt” Segir Anton.
Anton Helgi Hannesson gengur undir sviðsnafninu Anton How. Anton er þekktur sem forsprakki pönkrokk-hljómsveitarinnar InZeros og stofnandi glamrokkhljómsveitarinar Diamond Thunder.
Lagið Mótmæli er annað af fjórum í nýja raftónlistarverkefni Antons, sem er nokkurs konar uppgjör ársins 2016 í Reykjavík. Ferðamannaiðnaðurinn er í hæstu hæðum, æðstu stjórnendur landsins birtast í Panama-skjölunum og fjölmargir Íslendingar hafa flust til Noregs vegna skulda í kjölfar hruns. Í laginu Mótmæli eru síendurteknu mótmælunum á Austurvelli lýst; fólk er að fá sér í haus, 10-11 okrar eins og venjulega, auk þess að fólk býr til ný skilti nánast daglega. Ræða Svavar Knúts á Austurvelli birtist á köflum í laginu og bætir við skemmtilegu andrúmslofti.
Haukur Hannes, gítarleikari metalhljómsveitarinnar Gone Postal, sá um hljóðblöndun og pródúsentinn Bomarz (Bjarki Ómarsson) sá um að mastera lögin. Anton sá um flutning, upptökur og lagasmíði sjálfur. Sara Rut Fannarsdóttir listamaður útbjó plötuumslagið, sem er litríkt og fullt af smáatriðum af ringulreiðinni í Reykjavík.
Textabrot:
Fer út á Austurvöll, þar sem menn fá sér í haus
Eyði þúsund kalli í eitt brauð
Almúginn er mættur í fimmta sinn
Gamall skítur út og inn með hinn
Umræðan