Tónlistarmaðurinn Guðmundur Helgason, eða Mundih eins og hann kallar sig, var að senda frá sér lagið Stronger. Stronger er sjálfstætt framhald af laginu Little One sem kom út fyrr á þessu ári.
Hann segir að hugmyndin með lögunum hafi verið að halda umræðu um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum gangandi. „Það er mikilvægt að halda umræðunni áfram. Hlustum á börnin. Trúum þeim. Þau eru það dýrmætasta sem við eigum,“ segir hann en tekur fram að þótt hugmyndin með þessum tveimur lögum hafi verið að halda umræðunni um kynferðislega misnotkun á börnum gangandi, þá geti Stronger líka átt við persónulega sigra af hvaða tagi sem er. Þess má geta að það er Íris Eysteinsdóttir sem syngur í laginu.
Umræðan