Hljómsveitin Andvaka hefur gefið út sína fyrstu plötu, Andvana.
Að sögn sveitarinnar er platan sem er í þremur hlutum, hugsuð sem sálmur einstaklings sem fer í gegnum miklar breytingar á tímum myrkurs, depurðar og svefnleysis, en kemst á endanum að ljósinu. Er þetta allt í anda sveitarinnar sem kennir sig við melankólískt jarðarfararokk. Hægt er að nálgast plötuna á á öllum helstu streymisveitum.