Tónlistarkonan og leikkona Silja Rós er um þessar mundir að vinna að sinni annarri plötu Stay Still sem er væntanleg á árinu.
Platan hefur verið styrkt af Menningarsjóði, Bylgjunni, Stöð 2 & Stef. Ásamt því að vinna í plötunni hefur Silja Rós verið að semja tónlist í Danmörku bæði fyrir sig og aðra listamenn.
“Sem leikkona er margt spennandi framundan. Þau verkefni sem frestuðu útgáfu vegna covid fá vonandi að koma út á árinu. Svo eru ný verkefni líka í vinnslu sem fara í tökur á árinu. Þessi tími hefur algjörlega hjálpað manni að vera meira í núinu og kennt manni þolinmæði.”

Á morgun, föstudaginn 15. janúar frumsýnir vísir tónlistarmyndband við lagið Stay Still sem er fyrsta lagið af plötu Silju Rósar. Lagið fjallar um sérstakt samband Silju um hugarró.Lagið Mind Stuck On U er svo væntanlegt 29.janúar svo hlustendur Silju Rósar þurfa ekki að bíða lengi eftir næsta lagi.
Eins og gefur til kynna er Silja mikill tónlistargrúskari og er því tilvalið að fá hana í Topp fimm plötur á Albumm.is. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á plöturnar.