Tónlistarkonan Kira Kira eða Kristín Björk Kristjánsdóttir eins og hún heitir réttu hefur komið víða við á nokkuð löngum og glæstum tónlistarferli.
Kristín er einn af stofnmeðlimum listahópnum og plötuúgáfunni Kitchen Motors. Einnig hefur Kristín komið að kvikmyndargerð en árið 2011 sendi hún frá sér heimildarmyndina Amma Lo Fi sem fékk lof gagnrýnenda út um allan heim. Eins og kemur fram hér að ofan hefur Kristín komið víða við og er listinn í rauninni endalaus!
Við hjá Albumm fengum Kristínu til að okkur á hvaða fimm plötur eru í hennar uppáhaldi og afhverju.
„Það er auðvelt að dreyma sig í alls konar áttir með uppáhaldsmúsík en ég ákvað að taka saman plötur sem mótuðu mig um það leyti sem ég var að byrja að semja tónlist og svo stöffi sem hefur haft djúp áhrif á mig í seinni tíð.” segir Kristín að lokum.
Að lokum má nefna að á föstudaginn kemur kemur Kira Kira fram á Yoga Shala. Einnig koma fram Hermigervill, Teitur Magnússsoni, Kristófer Rodriguez og Gefjan. Nánar um viðburðinn hér.
Laraaji -Sun Transformations.
„Ég hlustaði víst á þessa plötu í 27 klukkustundir samtals á síðasta ári. Ég kann svo vel að meta leiðsluna sem tónlist Laraaji innspírerar. Hann semur hugleiðslutónlist af þannig heilindum að það er áþreifanlegt að hann er sjálfur í mjög næmri tengingu við inniljósið. Hann stúderar dulspeki og hefur verið að spila á zithar og gefa út síðan 1978. Hann er enn í blómstrandi aksjón og þekktasta útgáfa hans er sennilega “Ambient 3 -Day of Radiance” sem Brian Eno gaf út í seríu.”
The Residents -Meet The Residents.
„Mér hefur alltaf þótt heillandi að blanda saman experimental kvikmyndagerð og tónlist, eins og The Residents gerðu. Þeir brölluðu brjálæðislega kreatívar mínútumyndir sem voru stop-motion hreyfimyndir fléttaðar inn í frumstæðar brellur og heimatilbúnar sviðsmyndir og búninga. Þegar ég kynntist þeim þá opnaðist fyrir mér hvað sköpunargleðin getur þotið frjálst á milli þess að birtast í myndlist og tónlist. Það er svo margt spennandi sem gerist í svoleiðis djörfu speisi.”
Tom Waits -Bone Machine.
„Fyrstu plöturnar sem ég eignaðist með Waits voru reyndar “Heartattack and Wine” og “Blue Valentines” en “Bone Machine” endurspeglar kannski best leikgleði hans í því að nálgast hvað sem er sem hljóðfæri. Það var mikilvægur vendipúnktur í minni tónlistariðkun þegar ég tók upp á því að nota kontakt míkrófóna. Waits vinnur með skúr fullann af brotajárni og trommar á það í rannsóknaranda sem ég tengi vel við.”
Hope Sandoval & The Warm Inventions -Bavarian Fruit Bread.
„Það er einhver hlýja í söng Hope og nærveru sem ég hef alltaf tengt sterkt við. Hún gerði þessa plötu með írska trommaranum Colm Ó Cíosóig úr My Bloody Valentine og hún hefur verið í uppáhaldi hjá mér árum saman. Það er eins og ég geti ekki fengið leið á henni.”
Eskmo – Eskmo.
„Ég kynntist Eskmo (Brendan Angelides) árið 2014 í gegnum The Echo Society sem er kollektíva kvikmyndatónskálda í LA. Við fundum samhljóm í hverju öðru sem mystíkerar og alþýðuraftónskáld og tókum upp plötu saman sem við nostruðum við yfir hafið þangað til hún kom út hjá Ancestor Media í sumar. Eskmo er einhver skemmtilegasti hljóðskúlptúrgrallari sem ég þekki og líka mikið gæðablóð. Það er svo gefandi að vinna með tónlistarfólki sem leggur allt upp úr því að ganga til góðs og vera heil og tær manneskja.”
Umræðan