Kári Þór Arnþórsson er einn helsti plötusnúður landsins en hann hefur þeytt skífum á öllum helstu stöðum bæjarins frá því snemma á Tíunda áratugnum.
Dj Kári eins og flestir þekkja hann hefur komið víða við en hann vann lengi vel í hinni sálugu plötuverslun Hljómalind sem meistari Kiddi Kanína átti og rak. Það er óhætt að segja að Kári veit nánast allt um tónlist óháð tónlistarstefnum enda er smekkur hans breiður og djúpur. Oft matreiðir kappinn þó eðal rapp, elektró, funk og house ofan í gesti og gangandi og hefur hann oft rifið þakið af kofum bæjarins!
Það er sannur heiður að fá Kára í Topp fimm en eins og hann orðaði það sjálfur er þessi listi ekki negldur á blað og breytist iðulega. Hér fyrir neðan er listin og við ælum hiklaust með að skella á play og njóta vel!
—————————————————————————————————————–
Cocteau Twins – Heaven or Las Vegas:
Aphex Twin – Collected ambient works 85-92:
Elliott Smith – Either/Or:
Primal Scream – Screamadelica:
Nas – Illmatic:
Umræðan