Ari Árelíus er fjölhæfur tónlistarmaður sem hefur komið víða við.
á síðasta ári sendi Ari frá sér lagið „Silki” sem er gítardrifinn brass, electro bræðingur sem er undir áhrifum frá skynvillu og tilrauna rokktónlist.
Árið 2018 sendi kappinn frá sér plötuna Emperor Nothing sem fékk frábærar viðtökur og fékk hún talsverða spilun á öldum ljósvakans. Ari er afar iðinn tónlistarmaður enda streymir tónlistin um æðar hans! Þrátt fyrir furðulegt ástand situr Ari ekki aðgerðarlaus en hann hefur verið að pósta nýjum frumsömdum lögum á Instagrammið sitt, einmitt innblásin af þessum áhugverðu tímum.
Það er tilvalið að fá Ara í Fimm Uppáhalds Plötur á Albumm, og er listinn nokkuð þéttur:
Air – Moon Safari
„Mamma átti þessa í bílnum þegar ég var snáði. Fannst alltaf eins og að Beth Hirsch væri brosandi þegar hún söng.”
D’angelo – Voodoo
„Þessi plata groovar svo að það er fáránlegt.”
Khruangbin – Con Todo El Mundo
„Soundið á gítarnum, sálar og heimstónlistar reffarnir, hárkollurnar!”
The Box Tree – Skúli Sverrisson & Óskar Guðjónsson
„Lífið verður undurfagurt og leyndardómsfullt um leið og þessi fer á fóninn.”
Gil Scott-Heron – Piece of Man
„Tímalaus skilaboð.”
Umræðan