Fyrir stuttu sendu hjólabrettakapparnir Ingi Hrafn, Kolbeinn, Viktor Vigniss, Grímur og meistari Trend Lord frá sér frábært hjólabrettamyndband en myndbandið er allt tekið upp um sumarið og haustið 2019.
Hjólabretta senan á Íslandi fer ört stækkandi, og út um allan heim en í ár átti hjólabretti að taka þátt í Ólympíuleikunum í fyrsta skipti en að sökum Covid-19 hefur leikunum verið frestað. Ísland á marga framúrskarandi skeitara og er yngri kynslóðin að koma mjög sterk til leiks. Vorið er komið á kreik og hitastigið fer hækkandi og það er á hreinu að skeitarar á öllum aldri munu sjást á götum borgarinnar á næstunni, Því ber sko að fagna!
Þessi hjólabrettamynd er frábær og mælir Albumm klárlega með að þú skellir á play og þjótir svo út að skeita!
Umræðan