Rokksveitin superserious gefur út lagið let’s be grown ups. Fyrr á árinu gaf superserious út lagið let’s consume en hljómsveitin gerði nýleg útgáfusamning við Öldu Music. Superserious kemur með ferska og svalandi strauma inn í íslenskt tónlistarlíf með melódísku og gítarhlöðnu indírokki.
Sveitin gerði fyrst vart um sig með því að bera sigur úr býtum í Sykurmolanum, nýliðakeppni X977, með smellinum Let’s Consume. Lagið hefur síðan þá verið að klífa upp vinsældarlista á útvarpsstöðvum og streymisveitum, enda einstaklega grípandi með líflegum gítar- og bassalínum.
Meðlimir sveitarinnar eru þrír talsins og hafa margar fjörur og drykki sopið saman þegar kemur að tónlist og sköpun. Þeir stíga nú fram fullmótaðir undir nafni Superserious, tilbúnir að takast á við þá köllun að koma gítar, bassa og trommum aftur inn í tónlistarvitund Íslendinga. Er annars ekki kominn tími á smá stemingu?
Umræðan