Valborg Ólafsdóttir er ung og efnileg tónlistarkona sem var að gefa út nú á dögunum sína fyrstu plötu.
Þó að þetta sé fyrsta plata Valborgar þá er hún samt kunnug íslensku tónlistarlífi og hefur komið víða við, ber þar helst að nefna veru hennar í hljómsveitinni The lovely lion og þátttöku hennar í þáttunum the Voice sem vakti mikla athygli. Nýja plata Valborgar einkennist af grípandi melódíum, fallegum söng og einlægum textum sem samtvinnast í einkennandi hljóðheim. Platan er komin út og hægt er að hlusta á hana á Spotify sem og haldbærum eintökum, svosem vínyl eða geisladisk.
Platan er tekin upp í stúdó Hljóðverk af Einari Vilberg sem einnig mixaði og masteraði plötuna. Lög og textar eru samin af Valborgu sem sér einnig um söng og spilar á gítar aðrir hljóðfæraleikarar á plötunni eru Árni Guðjónsson, Orri Guðmundsson og Baldvin Freyr Þorsteinsson.
Umræðan