Fall er þriðja smáskífan af væntanlegri hljómplötu ROK. Lagið fjallar um fyrstu skrefin í ferðalagi sjálfsþroskans, sem er umfjöllunarefni plötunnar Wind in the Sails.
Vegferðin snýst um að gera mistökin og standa upp aftur og nýta reynsluna. Fyrstu skrefin eru tekin að hausti til (“Fall”) og því næst gengið inn í veturinn, vorið og sumarið. ROK er samstarf lagasmíðateymisins Guðna Þórs Þorsteinssonar, söngvara og lagamiðs hljómsveitarinnar Kviku, og Trausta Haraldssonar, sem samið hefur mikið fyrir Pál Óskar, til dæmis eins og La Dolce Vita og Minn hinsti dans. Samstarfið hófst fyrir 7 árum síðan, þegar Trausti sótti tónleika með hljómsveitinni Kviku.
Þar sem Rok á stútfullar skúffur af lagasmíðum, ákváðu þeir félagar loksins að fullklára 10 lög og gefa út plötu þegar Covid skall á en platan kemur út á næstu misserum.
Umræðan