Gunman and The Holy Ghost var að senda frá sér nýtt myndband við lagið Girl Called K, en lagið er af væntanlegri plötu sem nefnist The Death of Gunman and The Holy Ghost.
Titillinn vísar í upprisu Gunman verkefnisins sem hafði legið í dvala í nokkurn tíma, en nýju plötuna vann Hákon alfarið sjálfur á meðan samkomubanni stóð. Áður kom út myndband við lagið Stockholm City sem finna má á sömu plötu en það lag er ábreiða af lagi íslensku hljómsveitarinnar The Funerals.
Lagið Girl Called K er eyðimerkur ballaða með kántrí undirtónum og var myndbandið unnið í Joshua Tree í Kaliforníu eftir að Hákon hafði lokið tónleikaferð um Bandaríkin með hljómsveitinni The Brian Jonestown Massacre. Myndbandið er gert af Lilly Creightmore, en Mike Bruce sá um myndatöku. Hann hefur m.a. gert tónlistarmyndbönd fyrir Noel Gallagher og heimildarmynd um hljómsveitina Spindrift.
Platan kemur í 1. júlí á vegum bandarísku útgáfunnar Little Cloud Records, en hana má panta beint frá Bandcamp síðu Gunman and The Holy Ghost.
Umræðan