Einn ástsælasti tónlistarmaður landsins, Magnús Þór Sigmundsson var að senda frá sér nýtt lag sem heitir, Höfrungastúlkan.
Fyrir 39 árum þann 6 september 1981 sama dag og Magnús hóf störf á deild 32C á Landspítalanum, tók á móti honum ung stúlka að nafni Anna Benný sem er honum enn í dag mjög kær. „Anna spurði mig hvort ég væri engilinn sinn, Ert þú engillinn minn?.” Magnús skreið þarna til starfa illa á sig kominn vegna þess að þennan sama dag 6 Sept. lenti Rósa þáverandi kona hans í alvarlegu slysi og lést 3 dögum seinna 9 September.
„Anna Benný var mér miklu frekar sá engill og bjargvættur á næstu vikum sem ég starfaði á D 32 C ég var að klára upptökur á lagi um þennan dag og aðallega Höfrungastúlkuna fékk master nýlega sem Chris Omartian vinur minn gerði. Ragnar Ólafsson hafði samband við mig í vor og sagðist vilja vinna þetta lag með mér ef ég væri til, ég hafði spilað það fyrir hann 2 árum áður og það sat í honum Mér fannst það mjög góð hugmynd og nú er lagið Höfrungastúlkan tilbúið” segir Magnús að lokum.
Magnús Þór á Facebook
Umræðan