ALBUMM
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Heim News

Erlendir aðdáendur Duran Duran á leið til landsins

Ritstjórn Albúmm.is Eftir Ritstjórn Albúmm.is
13. May, 2019
í News
0 0
0
Erlendir aðdáendur Duran Duran á leið til landsins
Deila á FacebookDeila á Twitter

Búast má við töluverðum fjölda Duran Duran aðdáenda víðsvegar um heiminn á tónleikum sveitarinnar í Laugardalshöll þann 25. júní næstkomandi ef marka má miðasölu á tónleikana.

Hljómsveitin hefur ekki áformað aðra tónleika í Evrópu á árinu 2019 ef undan er skilin þátttaka Duran Duran á tónlistarhátíð í Óðinsvéum í Danmörku í lok júní en nokkrir tónleikar eru fyrirhugaðir í Bandaríkjunum í september, þar á meðal á tónlistarhátíð í San Diego í Kaliforníu. Því eru tónleikarnir á Íslandi einu tónleikarnir í fullri lengd í Evrópu það sem eftir lifir árs og eina tækifæri aðdáenda að sjá goðin sín á sviði.

„Það kemur okkur skemmtilega á óvart að sjá hversu margir erlendir aðdáendur ætla að koma til Íslands til að sjá Duran Duran. Samkvæmt þeim upplýsingum sem við sjáum í miðasölukerfinu þá hefur verið seldur töluverður fjöldi miða til kaupenda sem eru ekki búsettir á Íslandi og þá flestir frá Englandi og Hollandi,“ segir Björgvin Þór Rúnarsson hjá Mono viðburðir sem standa að tónleikunum. „Félagsmönnum í aðdáendaklúbbi Duran Duran var send tilkynning um tónleikana og boðið að kaupa miða í forsölunni. Þeir létu ekki á sér standa og greinilegt að Duran Duran eiga stóran hóp dyggra aðdáenda sem nýta tækifærið og skella sér til Íslands til að sjá bandið.“

Duran Duran hafa þó verið iðnir síðustu mánuði með tónleika í Evrópu, Bandaríkjunum, Suður-Ameríku, Miðausturlöndum og Asíu við frábærar viðtökur og dóma tónlistargagnrýnenda. Um þessar mundir er hljómsveitin hins vegar í tónleikahléi vegna upptöku á nýrri plötu sem kemur út áður en langt um líður og verður henni fylgt eftir með tónleikaferðalagi um allan heim. Það er Grammy verðlaunahafinn Mark Ronson sem vinnur plötuna með hljómsveitinni en þetta er í þriðja sinn sem Ronson og Duran Duran leiða saman hesta sína.  

Tónleikarnir í Reykjavík fara fram í nýju Laugardalshöllinni sem rúmar 10.000 gesti en alls sóttu um það bil 12.000 manns tónleika sveitarinnar árið 2005. Miðasala á tónleikana hefur farið vel af stað og búið er að selja nokkur þúsund miða á tónleikana í sumar. Hægt er að nálgast miða á tónleikana á Tix.is

Tengdar Greinar

Bríet hannar boli í samstarfi við rammagerðina.
Music

Bríet hannar boli í samstarfi við rammagerðina.

Verslunin Rammagerðin hefur hafið nýtt samstarfs verkefni sem að snýr að því að framleiða og selja tónlistar tengdan varning. ...

Eftir Álfrún Kolbrúnardóttir
15. December, 2022
Guðmundur R. lets his voice echo in the name of social matters
Music

Guðmundur R. lets his voice echo in the name of social matters

Nordic musician Guðmundur R. lets his voice echo in the name of social matters in his lyrics. Both happiness...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
25. November, 2022
Dansið eða deyið í síðasta sinn: Endalok Hatari
News

Dansið eða deyið í síðasta sinn: Endalok Hatari

Hatari er án efa ein svalasta hljómsveit sem ísland hefur af sér alið en nú boðar sveitin til endaloka!...

Eftir Ritstjórn Albúmm.is
26. December, 2018
kemur til dyranna eins og hann er klæddur
News

kemur til dyranna eins og hann er klæddur

Fyrir stuttu sendi tónlistarmaðurinn Auður frá sér stutt og tónlistarmyndina Afsakanir en hún er við lög af samnefndri plötu...

Eftir Ritstjórn Albúmm.is
21. December, 2018
Næsta frétt
September og Tómas Welding senda frá sér „Goodbye”

September og Tómas Welding senda frá sér „Goodbye”

Umræðan

albumm@albumm.is
steini@albumm.is
Sími: 768-8606
Faxafen 10, 108 Reykjavík

VALMYND

  • TÓNLIST
  • MENNING
  • ALBUMM TV
  • INNLIT
Albumm.is © 2021 Allur réttur áskilinn | Íslandsvefir hönnuðu og hýsa þennan vef.
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
  • Music
  • Culture
  • Albumm TV

© 2021 Albumm.is - Allur réttur áskilinn

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In

Add New Playlist