Elín Harpa er 23 ára tónlistarkona úr Breiðholti. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Elín verið að semja tónlist í mörg ár. Elín hefur mikið sungið og spila jazz og einnig þanið raddböndin með hljómsveitinni Bang Gang sem stýrt er af Barða Jóhannssyni. Seinustu tvö ár hefur Elín verið talsvert á flakki en hún hefur m.a. túrað með Bang Gang í Kína, svo fátt sé nefnt.
Upptökur á sóló verkefni Elínar hófst haustið 2018 og er lagið Run fyrsta frumsamda lagið sem hún gefur út. Lagið var samið í fyrra og frumflutt á Iceland Airwaves 2018 ásamt öðru efni sem kemur út á næstu misserum. Lagið var tekið upp og unnið í samstarfi við hinn hæfileikaríka Magnús Jóhann Ragnarsson.