Tónlistar og leikkonan Elín Hall gaf út fyrir stuttu lagið „Ekki Gleyma Mér.”
Lagið er fjórða lagið af plötu hennar „Með Öðrum Orðum” sem kemur út á föstudaginn, 10. júlí Ekki Gleyma Mér er hjartnæmt en upplífgandi lag sem fjallar um að horfa á björtu hliðarnar þrátt fyrir ástarsorg. Hér má lesa smá brot úr texta lagsins:
„Ef það yrði aldrei myrkur, sæjum við ekki stjörnurnar
Hamingjan er ekki staður, hamingjan er ferðamáti”
Lagið er sumarlegt og sendir hlýja strauma í hjörtu hlustenda og er fullkomið til þess að koma sér í rétta gírinn fyrir komandi sumar daga!
Umræðan