Hljómplatan „Good Sick Fun with Singapore Sling” er komin út og eins og áður er hún fyrst og fremst inspíreruð af gömlu rokk og róli.
„Í hvert skipti sem ég geri plötu þýðir það að rokk og ról hefur bjargað mínu lífi, huga og sál í enn eitt skiptið. Stundum gerist það að ég sogast inn í eitthvað bull og fer að halda að það skipti einhverju máli. En síðan átta ég mig á því að ekkert skiptir máli nema rokk og ról. Þá bý ég til plötu” segir Henrik Björnsson forsprakki sveitarinnar.
Henrik Samdi plötuna og tók upp heima hjá sér fyrstu mánuði þessa árs. Var hún síðan hljóðblönduð í sumar af Guðlaugi Halldórssyni og Henrik. Einnig voru fleiri hljóðfæraleikarar teknir upp. Haukur Gröndal spilaði á tenor og barítón saxafóna í laginu „Touch The Filth” og Axel Björnsson sem framkvæmdi gítarhávaða í laginu „Sickin´ Street.” Bakraddir sungu Tatjana Dís, Elsa María Blöndal og Anna Björnsson. Platan er masteruð af Ryan Van Kriedt.
„Titillinn? Gerum rangt og höfum gaman af því í staðinn fyrir að reyna alltaf að gera “rétt” og vera með móral yfir því að takast það ekki. Gefum skít í reglur og venjur og vægðarleg gildi. Gerum það sem okkur sýnist” – segir Henrik að lokum!
Það er Éttu Skýt Records sem gefur plötuna út og er hún fáanleg á vínyl og CD í 12 Tónum og Smekkleysu og á vínyl í Lucky Records og Reykjavík Record shop.
Singapore Sling á Facebook