Tónlistarkonan Svala gefur út nýtt lag sem hún samdi með Friðrik Ómar og Bjarka Ómarssyni sem heitir Þú togar í mig. Lagið er tregafull ballaða sem talar um þær mörgu og flóknu tilfinningar sem koma upp þegar margra ára ástarsambandi lýkur.
Þetta er eitt það persónulegasta lag sem Svala hefur samið á sínum ferli. „Það fylgja flóknar tilfinningar sem stangast á þegar maður skilur við besta vin sinn til margra ára. Það tekur mörg ár að vinna úr þeim.” segir Svala.
Umræðan